Hvernig virka kjarnaofnar?
Í kjarnorkuveri eru kjarnaofnar. Kjarnaklofnunin á sér stað í kjarnaofninum. Eldsneytið í kjarnaofni er úrantvíoxið og því er komið fyrir í eldsneytisstöngum sem eru metri á lengd. Þegar nifteindir rekast á úrankjarna í eldsneytisstöngunum klofna kjarnarnir og þá losna nýjar nifteindir. Um leið losnar mikil orka. Orkan hitar vatnið í ofninum og það tekur að sjóða. Gufan, sem þá myndast, er leidd inn í hverfil sem knýr rafal og hann framleiðir rafmagn. Vatnið í ofninum sér til þess að hægja á nifteindunum.
Í kjarnaofninum eru stýristengur, þær eru notaðar til að ákvarða hversu hratt keðjuverkunin gengur fyrir sig. Stýristengurnar eru semsagt notaðar til að auka orkuframleiðslu ofnsins eða draga úr henni. Allur kjarnaofninn er á kafi í vatni. Eldsneytisstengurnar eru inni í ofninum.